Fotbolti.net
02.06.09 - 17:30
Hafliði Breiðfjörð

Gareth Barry til Manchester City (Staðfest)

Gareth Barry er kominn til Manchster City. Hér fagnar hann marki á Laugardalsvelli gegn FH síðasta sumar.

Gareth Barry er kominn til Manchster City. Hér fagnar hann marki á Laugardalsvelli gegn FH síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Manchester City hefur gengið frá kaupum á Gareth Barry frá Aston Villa en þessi enski landsliðsmaður kostar félagið 12 milljónir punda.
Barry, sem er 28 ára gamall, var orðaður við Liverpool síðastliðið sumar en þeir rauðu voru ekki tilbúnir að borga þær átján milljónir punda sem Villa vildi fá fyrir leikmanninn.

Barry verður samningslaus eftir eitt ár en Aston Villa hafði boðið honum nýjan samning.

Talið var að Barry hefði áhuga á að ganga til liðs við félag sem leikur í Meistaradeildinni en Manchester City hlaut náð fyrir augum hans þrátt fyrir að gera það ekki enda ætlar félagið sér mikla hluti.

Barry er með enska landsliðinu sem nú undirbýr sig fyrir tvo leiki í undankeppni HM 2010. Hann spilaði næstum 400 leiki með Aston Villa og skoraði í þeim 52 mörk.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.