Marokkóski sóknartengiliðurinn Ismael Saibari er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningi frá Þýskalandsmeisturum FC Bayern.
Saibari, sem lék fyrri hálfleikinn í vináttulandsleik Marokkó í dag og skoraði tvennu, er algjör lykilmaður í sterku liði PSV Eindhoven þar sem skoraði 19 mörk og gaf 9 stoðsendingar í 37 leikjum á tímabilinu.
Vincent Kompany þjálfari hefur miklar mætur á Saibari sem getur einnig spilað úti á kanti og í fremstu víglínu. Hann er 25 ára og er PSV talið vilja fá um 60 milljónir evra til að selja hann.
Anthony Gordon kantmaður Newcastle var efstur á óskalista Bayern í sumar en hann gekk til liðs við Barcelona á dögunum. Saibari er næsta skotmark þó hann spili ekki sömu stöðu og Gordon.
Bayern vill ganga frá félagaskiptunum áður en HM fer af stað. Saibari er í landsliðshópi Marokkó.
29.05.2026 22:30
Bayern tók Barcelona ekki alvarlega




