Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 02. júlí 2022 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Laporta: De Jong er ekki til sölu

Það voru áhugaverð tíðindi að berast frá Barcelona þar sem Joan Laporta forseti félagsins neitar því að Frenkie de Jong sé til sölu.


Barca hefur verið í viðræðum við Manchester United um möguleg félagaskipti De Jong. Fjölmiðlar segja að viðræðurnar um kaupverð séu komnar á lokastig og líklegt að samkomulag náist.

Þrátt fyrir þessa þróun heldur Laporta því fram að De Jong sé ekki til sölu en bendir á að miðjumaðurinn gæti þurft að taka launalækkun á sig til að vera áfram.

„Það eru mörg félög sem vilja hann, ekki bara Man Utd. Við höfum engan áhuga á að selja leikmanninn og hann vill vera áfram hjá okkur," sagði Laporta.

„Ég ætla að gera allt í mínu valdi til að halda Frenkie, en við þurfum að endurskoða samninginn."


Athugasemdir
banner