Fotbolti.net
02.08.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Raul Tamudo til Real Sociedad (Staðfest)

Raul Tamudo.

Raul Tamudo.

Canon

Mynd: Getty Images

Raul Tamudo sem er í guðatölu hjá stuðnignsmönnum Espanyol er hættur hjá félaginu og genginn til liðs við Real Sociedad sem var að koma upp í spænsku deildina að nýju.
Þessi gamalreyndi frmaherji skrifar undir eins árs samning við Sociedad en hann hafði verið í 13 ár hjá Espanyol og er markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi.

Hann féll aftar í goggunarröðinni hjá Mauricio Pochettino þjálfara Espanyol á síðustu leiktíð og lenti deilum um samning sinn við félagið í byrjun ársins.

,,Tími minn hjá Espanyol var frábær, en ég verð að gleyma fortíðinni og lifa í nútíðinni,\" sagði hann eftir félagaskiptin. ,,Ég mun gefa allt í að hjálpa Real á hverjum sunnudegi.\"

Tamudo gerir eins árs samning til að byrja með en vonast til að vera hjá félaginu til lengri tíma ef vel gengur.

,,Ég vonast til að vera hérna lengi. Sjáum hvernig fyrsta árið fer og þá verður tími til að ræða allt. Ég spilaði ekki mikið á síðata ári, en æfði daglega. Ég er spenntur og kem hingað með fullhlaðnar rafhlöður.\"

Heimild: PA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.