02.08.10 - 07:34
Hafliði Breiðfjörð
Carlos Marchena til Villarreal (Staðfest)

Marcehena í leik gegn Íslandi á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Villarreal hefur gengið frá kaupum á Carlos Marchena varnarmanni Valencia sem skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Marchena er 31 árs gamall og var í leikmannahópi Spánverja sem urðu Heimsmeistarar í síðasta mánuði. Hann komst í gegnum læknisskoðun í gær og verður kynntur fyrir fjölmiðlum í gær.
Hann mun svo hitta liðsfélagana á þriðjudag en í liði Villarreal hittir hann fyrir Johan Capdevila liðsfélaga sinn í spænska landsliðinu.
Marchena hafði verið í tíu ár hjá Valencia og á þeim tíma vann hann deildina tvisvar, UEFA Cup, spænska bikarinn og ofurbikarinn.
Hann getur spilað sem miðvörður eða miðjumaður og var einnnig Evrópumeistari með Spánverjum. Hann hafði áður leikið með Sevilla og Benfica og á að baki 60 landsleiki.

Heimild: Sky