Fotbolti.net
02.08.10 - 18:53
Alexander Freyr Tamimi

Eriksson hættur með landslið Fílabeinsstrandarinnar (Staðfest)

Eriksson verður ekki áfram landsliðsþjálfari Fílbeininga.

Eriksson verður ekki áfram landsliðsþjálfari Fílbeininga.

Canon

Mynd: Getty Images

Sven-Göran Eriksson mun ekki halda áfram sem landsliðsþjálfari Fílabeinsstrandarinnar eftir að samningviðræður strönduðu á launamálunum.
Eriksson tók við landsliði Fílabeinsstrandarinnar í mars og kom liðinu á heimsmeistaramótið í Suður Afríku, en lenti í sannkölluðum dauðariðli og tókst ekki að koma þeim upp úr riðlinum. Talið var að hann myndi taka pokann sinn eftir mótið en hann greindi síðan sjálfur frá því að nýr fjögurra ára samningur væri í bígerð.

Sory Diabete hjá knattspyrnusambandi Fílabeinsstrandarinnar að ekkert verði úr þeim samningi.

„Eriksson verður ekki áfram þjálfari Fílabeinsstrandarinnar. Hann var fyrsta valið en viðræðurnar urðu að engu þegar kom að peningamálunum, þrátt fyrir mikinn vilja beggja aðila,“ sagði Diabete.

„Ég vil enn og aftur þakka Eriksson fyrir frábært starf sem hann vann við landsliðið á heimsmeistaramótinu.“

Fílabeinsströndin mætir Ítalíu í vináttuleik í London þann 10. ágúst og vonast þeir til að vera komnir með staðgengil fyrir þann tíma.

Heimild: Soccernet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.