02.09.08 - 06:00
Davíð Örn Atlason
Antoine Sibierski á láni til Norwich (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Antoine Sibierski er farinn á þriggja mánaða lán hjá Norwich frá enska úrvalsdeildarliðinu Wigan Athletic.
Þessi 34 ára gamli leikmaður hefur verið að glíma við meiðsli á fæti en Glenn Roeder stjóri Norwich hefur trú á honum.
Steve Bruce knattspyrnustjóri Wigan segir að hann geti orðið drjúgur fyrir liðið á þessu tímabili en hann þurfi að komast í leikform hjá Norwich.
,,Antoine er klárlega góður leikmaður, sem getur orðið drjúgur fyrir okkur á tímabilinu,\" sagði Bruce.
,,Hinsvegar þegar að maður horfir yfir allt, þá vantar honum allt form þannig að ég ætla að leyfa honum að fara í þrjá mánuði.\"

Heimild: Setanta