02.09.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Sergio Garcia til Real Betis (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Betis krækti í framherjann Sergio Garcia frá Real Zaragoza áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær.
Garcia hefur verið orðaður við nokkur félög í sumar eftir að Zaragoza féll úr spænsku úrvalsdeildinni.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hóf feril sinn hjá Barcelona en fékk fá tækifæri þar og fór í kjölfarið til Levante. Hann gekk síðan í raðir Zaragoza árið 2005´.
Þar stóð hann sig vel og vann sér meðal annars sæti í spænska landsliðshópnum sem fór á EM í sumar.
Garcia er ekki eini framherjinn sem yfirgaf Zaragoza í gær því félagið seldi einnig Diego Milito til Genoa á Ítalíu.

Heimild: Sporting Life