02.09.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Tom Soares og Michael Tonge til Stoke (Staðfest)

Michael Tonge er farinn til Stoke.

Mynd: Getty Images

Michael Tonge er farinn til Stoke.

Mynd: Getty Images
Tony Pulis stjóri Stoke lét til sín taka rétt áður en félagaskiptamarkaðurinn lokaði í gærkvöldi en hann keypti miðjumennina Tom Soares og Michael Tonge.
Kaupverðið á leikmönnunum hefur ekki verið gefið upp en Soares kom frá Crystal Palace og Tonge frá Sheffield United.
Soares, sem er 22 ára, hefur leikið allan sinn feril hjá Palace og hefur verið í byrjunarliðinu það sem af er tímabili en nú er hann farinn til Stoke.
Tonge hefur verið í átta ár hjá Sheffield United og leikið yfir 300 leiki með liðinu.
Hann hefur smá reynslu úr ensku úrvalsdeildinni eftir að hann lék með Sheffield United tímabilið 2006/2007.

Heimild: Sky