Fotbolti.net
02.09.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Charlton fær Craine á láni frá Portsmouth (Staðfest)

Charlton fær Craine á láni frá Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Charlton Athletic hefur fengið varnarmanninn Martin Craine á láni frá Portsmouth en lánssamningurinn gildir út tímabilið.
Félagaskiptin voru á síðustu stundu en þau gengu í gegn þegar að 20 mínútur voru þangað til að félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi.

Craine gekk í raðir Portsmouth síðastliðið sumar en hann kom til félagsins frá Southampton.

Þessum enska U21 árs landsliðsmanni gekk illa að festa sig í sessi hjá Portsmouth og lék einungis þrjá leiki með liðinu á síðasta tímabili.

Hann var hluta tímabilsins á láni hjá QPR en það tímabil varði ekki lengi því Craine varð fyrir því óláni að fótbrotna á meðan dvöl hans þar stóð yfir.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.