Fotbolti.net
02.09.08 - 15:03
Magnús Már Einarsson

Emile Mpenza til Plymouth (Staðfest)

Emile Mpenza til Plymouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Plymouth Argyle hefur samið við belgíska framherjann Emile Mpenza.
Mpenza hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Manchester City í sumar en nú hefur hann gert eins árs samning við Plymouth.

Paul Sturrock stjóri Plymouth hefur lengi verið á eftir hinum þrítuga Mpenza og er ánægður með að hafa náð samningum.

,,Hann er landsliðsframherji og þeir vaxa ekki á trjánum,\" sagði Sturrock.

,,Hann kemur með reynslu í framlínuna og gefur okkur eitthvað öðruvísi sem við höfðum ekki áður.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.