Fotbolti.net
02.09.08 - 19:43
Gunnar Gunnarsson

Kevin Keegan áfram við stjórnvölinn hjá Newcastle (Staðfest)

Kevin Keegan verður áfram hjá Newcastle

Kevin Keegan verður áfram hjá Newcastle

Canon

Mynd: Getty Images

Kevin Keegan verður áfram þjálfari Newcastle United þrátt fyrir ítrekaðar fréttir þess efnis í dag að hann væri á förum frá félaginu.
Eftir miklar vangaveltur í fjölmiðlum í dag þess efnis að þjálfari liðsins Kevin Keegan væri líklega að yfirgefa herbúðir þeirra röndóttu í norðaustur hluta Englands, hefur Newcastle loksins gefið út yfirlýsingu á opinberri heimasíðu félagsins þess efnis að Kevin Keegan hafi ekki verið sagt upp og muni því áfram stjórna liðinu.

Yfirlýsingin er svo hljóðandi:

,,Newcastle United getur staðfest að fundahöld hafi staðið yfir milli stjórnenda félagsins og þjálfara liðsins Kevin Keegan bæði í dag og í gær. Kevin hefur rætt um nokkur mál og hafa þau hlotið farsælan endi.\"

,,Félagið vill halda áfram með langtímaskipulag sitt og vill koma því áleiðis að Kevin Keegan sé mjög mikilvægur hlekkur bæði nú og í komandi framtíð,\" segir áfram í yfirlýsingu félagsins.

,,Newcastle United metur mikils þá vinnu og tryggð sem Kevin hefur sýnt síðan hann tók við á St. James\' Park í byrjun árs og vill gjarnan að hann haldi áfram því framúrskarandi starfi sem þjálfari félagsins.\"

,,Til að fyrirbyggja allan misskilning þá hefur stjórn Newcastle United ekki rekið Kevin Keegan sem aðalþjálfara liðsins,\" segir í lok yfirlýsingarinnar.

Veðbankar lokuðu fyrir viðskipti í morgun um hvaða þjálfari þyrfti fyrstur að taka poka sinn í ensku úrvalsdeildinni eftir að talsverðum peningum höfðu verið bókaðir á Keegan, en Kevin hefur verið afar ósáttur með að fá ekki til sín nýja leikmenn auk þess sem salan á James Milner gladdi hann ekkert sérstaklega.

Allir helstu fjölmiðlar höfðu talið afar líklegt að þessi fyrrverandi þjálfari Manchester City væri hættur störfum og að áköf mótmæli stuðningsmanna Newcastle fyrir utan heimavöll liðsins St. James\'s Park væru í gangi.

Heimild: Goal.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.