Fotbolti.net
02.10.08 - 15:38
Magnús Már Einarsson

Ólafur Þórðarson tekinn við Fylki (Staðfest)

Ólafur Þórðarson tekinn við Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Ólafur Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari Fylkis og skrifaði hann undir tveggja ára samning við félagið í dag. Ólafur var í fríi frá þjálfun í ár eftir að hafa þjálfað Framara sumarið 2007.
Sverrir Sverrisson tók við stjórnartaumunum hjá Fylki í ágúst af Leifi Garðarssyni og stýrði liðinu út tímabilið. Sverrir gat ekki haldið áfram með Fylki en félagið hefur nú ráðið Ólaf sem þjálfara.

Ólafur þekkir til hjá Fylki því hann stýrði liðinu 1998 og 1999. Síðara árið stýrði hann liðinu til sigurs í fyrstu deildinni.

Í kjölfarið tók hann við liði ÍA en Ólafur gerði Skagamenn meðal annars að Íslandsmeisturum árið 2001.

,,Viðræður gengu hratt og vel fyrir sig sem lýsir vel áhuga beggja aðila fyrir samstarfi,\" segir á heimasíðu Fylkis.

,,Viðræðum við leikmenn með lausa samninga var slegið á frest þar til búið var að ráða nýjan þjálfara.\"

,,Á næstu dögum verður þeim viðræðum framhaldið og ríkir bjartsýni um að þeim ljúki á allra næstu dögum. Hvort þörf verður á að styrkja leikmannahópinn kemur í ljós á næstu vikum.\"

Heimild: Heimasíða Fylkis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.