Hermann og fjölskyldan mættu að Hlíðarenda í dag. Á myndinni eru Jóhann Lárus, Hermann sjálfur, Alexandra Fanney eiginkona hans, Thelma Lóa, Hermann Alex og Emil Max. Á myndina vantar elstu dótturina, Ídu Marín, sem leikur með FH í Bestu deildinni.
Valur er búinn að staðfesta ráðningu á Hermanni Hreiðarssyni sem nýjum aðalþjálfara meistaraflokks karla. Hann tekur við af Srdjan Tufegdzic sem var rekinn á dögunum.
Chris Brazell hefur á sama tíma verið færður í starf aðstoðarþjálfara en hann hefur starfað sem aðalþjálfari 2. flokks og afreksþjálfari hjá Val að undanförnu, eftir að hafa áður verið hjá Gróttu og Norwich.
„Unnið er að því að fullmanna þjálfarateymið sem verður kynnt á opnum félagsfundi ásamt kynningu á stefnumótunarvinnu sem stjórn knattspyrnudeildar hefur unnið að á þessu ári. Boðað verður til fundarins áður en liðin koma aftur til æfinga í lok mánaðar," segir meðal annars í tilkynningu frá Val.
Hermann Hreiðarsson tekur við Val eftir að hafa þjálfað HK og ÍBV á síðustu árum.
„Þegar félag eins og Valur hefur samband er það auðvitað eitthvað sem kveikir áhuga. Ég fann það strax á samtölum mínum að það er samhljómur í þeirra framtíðarsýn og áherslum og þess sem ég vil standa fyrir. Hér er raunverulegur vilji til þess að gefa yngri leikmönnum stærra hlutverk og hugsa til framtíðar sem ég fíla. Á sama tíma ætlum við auðvitað að berjast um alla þessa titla enda er ég að taka við einu besta fótboltaliði landsins. Ég hlakka til að vinna með Chris og teyminu og mun auðvitað leggja áherslu á það sem ég stend fyrir. Ég get lofað fólki því að það verður gaman að horfa á Valsliðið undir minni stjórn og það er alveg á hreinu að það verður ekki þægilegt að spila á móti Val á meðan ég stýri liðinu," sagði Hermann við undirskriftina.
Björn Steinar Jónsson formaður fótboltadeildar Vals lýsti einnig yfir mikilli ánægju með ráðninguna.
„Það er mikið ánægjuefni að hafa náð að sannfæra Hermann um að koma til okkar í Val. Við lögðum áherslu á faglegt ferli og unnum þetta með nýráðnum tæknilegum ráðgjafa félagsins. Við erum að vinna eftir ákveðinni stefnu og hugmyndafræði og það var skýr niðurstaða og sannfæring okkar allra að Hermann sé rétti kosturinn til þess að leiða það verkefni. Við vitum hvað við höfum í Chris sem hefur verið hjá okkur núna heilt tímabil og staðið sig gríðarlega vel. Hermann hefur eiginleika sem við teljum okkur þurfa inn í það sem við erum að gera og ég er ekki í nokkrum vafa um að hann muni koma inn í félagið okkar af krafti."
Valur endaði í öðru sæti Bestu deildarinnar og tapaði úrslitaleik bikarsins á nýliðnu tímabili, án þess að komast neitt áleiðis í Evrópu.
Athugasemdir




