Fotbolti.net
02.12.09 - 07:02
Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Aron Hjartarson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Kristinn Aaron er hér vinstra megin á myndinni eftir undirskriftina í gær.

Kristinn Aaron er hér vinstra megin á myndinni eftir undirskriftina í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Aron Hjartarson er genginn í raðir BÍ/Bolungarvíkur og skrifaði undir samning við Vestfirðingana í Sólsteinum í Kópavogi í gær.
Kristinn Aron kemur til félagsins frá uppeldisfélagi sínu, ÍA en þar lék hann tvo leiki í 1. deildinni og einn í VISA-bikarnum síðasta sumar. Hann var svo lánaður til Skallagríms í 3. deildina á síðari hluta tímabilsins.

Kristinn Aron hafði æft með Atureldingu upp á síðkastið og skoraði fyrir Mosfellingana í æfingaleik um helgina. Hann ákvað svo að taka tilboði BÍ/Bolungarvíkur og samdi við 2. deildarfélagið í gær.

Hann hefur skorað 9 mörk í 48 meistaraflokksleikjum með Kára, Skallagrími og ÍA. Hann er 23 ára gamall og hefur leikið sem miðvörður og bakvörður en þykir einnig liðtækur í framlínuna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.