Fotbolti.net
02.12.09 - 11:08
Magnús Már Einarsson

Ailton semur við félag í sjöttu efstu deild (Staðfest)

Ailton semur við félag í sjöttu efstu deild (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

KFC Uerdingen, sem leikur í sjöttu efstu deild í Þýskalandi, hefur gert 18 mánaða samning við brasilíska framherjann Ailton.
Ailton sló í gegn í Þýskalandi á sínum tíma en hann var meðal annars valinn leikmaður ársins í Þyskalandi árið 2004.

Ailton lék með Werder Bremen, Schalke og Hamburger SV í Þýskalandi og síðar Besiktas í Tyrklandi og Rauðu Stjörnunni í Belgrad.

Undanfarin tvö ár hefur Ailton verið á miklu flakki á milli félaga en hann hefur stoppað við í Austurríki, Sviss, Rússlandi og í heimalandinu.

Síðast var hann síðan hjá Chongqing Lifan í Kína þar sem að hann lék nokkra leiki.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.