02.12.09 - 15:17
Magnús Már Einarsson
Roberto Carlos til Corinthians (Staðfest)

Ronaldo og Roberto Carlos munu leika saman að nýju hjá Corinthians.

Mynd: Getty Images

Brasilíski vinstri bakvörðurinn Roberto Carlos hefur gert tveggja ára samning við Corinthians í heimalandi sínu.
Carlos mun ganga til liðs við Corinthians þegar að samningur hans við tyrkneska félagið Fenerbace rennur út þann 20.desember.
,,Corinthians er félag sem er að fjárfesta, þeir vilja verða Libertadores meistarar á næsta ári og þetta er félag sem er að byggja upp til að verða meistari,\" sagði Carlos.
Carlos lék með Real Madrid frá 1996-2007 en í fjögur og hálft ár var hann ásamt landa sínum Ronaldo hjá félaginu. Þeir munu núna leika saman að nýju hjá Corinthians.
,,Ég er stoltur að því að fá að spila aftur í sama liði og hann (Ronaldo),\" sagði Carlos.

Heimild: Reuters