03.01.05 - 11:50
Magnús Már Einarsson
Maccarone til Siena (Staðfest)

Maccarone með fyrirgjöf.


Maccarone með fyrirgjöf.

Siena hefur fengið sóknarmanninn Massimo Maccarone að láni frá Middlesbrough. Maccarone er í eigu Middlesbrough og fær Siena hann í láni út leiktíðina en fyrri hluta tímabilsins hafði hann verið í láni hjá Parma.
Hjá Parma fékk hinn 25 ára gamli Maccarone hinsvegar að spila aðeins sjö leiki og lék hann alls 323 mínútur og vildi hann komast burt frá félaginu. Hann mun æfa með Siena í dag en honum hefur verið úthlutað treyju númer 32 hjá félaginu.
