03.02.10 - 19:48
Magnús Már Einarsson
Ricardo Rocha til Portsmouth (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur gert samning við portúgalska varnarmanninn Ricardo Rocha en hann verður hjá félaginu út tímabilið.
Rocha losnaði undan samningi hjá Standard Liege um helgina og getur því gengið til liðs við Portsmouth þó að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Rocha þekkir til í Englandi því að hann lék áður í tvö ár með Tottenham Hotspur.
,,Ég veit að miðað við stöðu okkar í deildinni þá erum við í smá vandræðum núna en ég veit að allir eru að gera sitt besta til að komast úr þessari stöðu og ég er hér til að hjálpa liðinu að ná því markmiði,\" sagði Rocha.
Portsmouth er á botni ensku úrvalsdeildarinnar en talið er að félagið reyni að fá tvo eða þrjá aðra leikmenn frítt til liðs við sig á næstunni.

Heimild: BBC