03.03.10 - 15:26
Magnús Már Einarsson
Andy van der Meyde til PSV Eindhoven (Staðfest)

Van der Meyde í leik með Inter á sínum tíma.

Mynd: Getty Images

Hollenski kantmaðurinn Andy van der Meyde hefur gert samning við PSV Eindhoven út þetta tímabil.
Van der Meyde var á sínum tíma í hollenska landsliðinu og hann lék með Inter frá 2003-2005 en síðan þá hefur ferillinn legið hressilega niður á við.
Þessi þrítugi leikmaður lék með Everton frá 2005-2009 en kom einungis við sögu í 20 leikjum á þessum tíma.
Van der Meyde yfirgaf Everton síðastliðið sumar og hefur verið félagslaus síðan þá en hann hefur núna gert samning við PSV út tímabilið með möguleika á framlengingu.
PSV er á toppnum í hollensku deildinni sem stendur en félagið ákvað að fá van der Meyde til að fylla skarð Danko Lazovic sem er á leið til Zenit St Petersborg.

Heimild: Soccernet