Fotbolti.net
03.04.09 - 10:32
Magnús Már Einarsson

Hermann Aðalgeirsson í Fjölni (Staðfest)

Hermann Aðalgeirsson í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Hermann Aðalgeirsson, sem leikið hefur með Fylki undanfarin ár, hefur samið við Fjölni og mun hann leika með liðinu í sumar. Einar Hermannsson formaður meistaraflokksráðs Fjölnis staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag.
Hermann, er 23 ára miðju og sóknarmaður, hefur leikið með Fylki síðan árið 2006 en hann hætti hjá félaginu í byrjun síðasta mánaðar.

Hann var samningslaus og ákvað að nýta sér það og prófa að leita á nýjar slóðir. Hermann hefur æft með Fjölni og leikið æfingaleiki að undanförnu og núna hefur hann samið við félagið.

Áður lék Hermann með Völsungi þar sem hann hóf meistaraflokksferil sinn einungis 16 ára gamall en þar lék hann meðal annars undir stjórn Ásmundar Arnarssonar, núverandi þjálfara Fjölnis.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.