Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 12:11
Brynjar Ingi Erluson
Brasilískur varnarmaður í Vestra (Staðfest)
Mynd: Vestri
Bikarmeistarar Vestra hafa fengið til sín brasilíska varnarmanninn Edson til félagsins frá Rondoniense í Brasilíu.

Edson er 23 ára gamall miðvörður sem spilaði með unglingaliðum Ponte Preta og Vitóría í heimalandinu.

Hann var á mála hjá Gábes í efstu deild í Túnis á síðasta ári, en gekk í raðir Rondoniense í byrjun ársins og spilaði 14 leiki og skoraði tvö mörk á tímabilinu.

Edson er nú mættur vestur og byrjaður að láta til sín taka á æfingum.

Vestri féll úr Bestu deildinni síðasta haust en vann Mjólkurbikarinn og mun því leika í forkeppni Evrópudeildarinnar sem Lengjudeildarlið, en það hefur ekki gerst síðan Þórsarar spiluðu í Evrópudeildinni árið 2012.

Liðið féll niður um deild haustið 2011 en tryggði sér Evrópusæti með því að komast í úrslitaleik Mjólkurbikarsins árið á undan.

Næsti leikur Vestra er gegn Leikni í 32-liða úrslitum bikarsins þann 11. apríl en spilað er á Kerecis-vellinum á Ísafirði. Vestri hefur síðan leik í Lengjudeildinni gegn Grindavík þann 25. apríl.
Slapp
banner
banner