Gennaro Ivan Gattuso er hættur þjálfun ítalska landsliðsins en þetta staðfestir fótboltasambandið með yfirlýsingu í dag.
Ítalía tapaði fyrir Bosníu og Hersegóvínu eftir vítakeppni í hreinum úrslitaleik um sæti á HM.
Þetta er þriðja heimsmeistaramótið sem Ítalía missir af og hefur þetta skapað mikla ólgu á Ítalíu.
Gattuso tók við Ítölum síðasta sumar og kom liðinu í umspilið. Það vann Norður-Írland í undanúrslitum en tapaði óvænt fyrir Bosníu í úrslitum og baðst Gattuso afsökunar á frammistöðunni.
Í gær sagði Buffon, sem hefur unnið náið með Gattuso síðasta árið, einnig upp störfum ásamt Gabriele Gravina, forseta fótboltasambandsins. Í dag var síðan brottför Gattuso staðfest á miðlum sambandsins.
Antonio Conte og Massimo Allegri hafa verið orðaðir við þjálfarastöðuna, en Conte þjálfar Ítalíumeistara Napoli á meðan Allegri er að þjálfa Milan.
“Un onore aver potuto guidare la Nazionale”
— Nazionale Italiana ???????? (@Azzurri) April 3, 2026
Comunicato ufficiale ??https://t.co/GfkKzQnQv3


