ÍBV hefur staðfest komu Serbans Filip Stuparevic til félagsins.
Hann er 25 ára gamall framherji. Hann hefur spilað víða í Serbíu og var á mála hjá Watford og nú síðast hjá Mortherwell í Skotlandi.
Hann er 25 ára gamall framherji. Hann hefur spilað víða í Serbíu og var á mála hjá Watford og nú síðast hjá Mortherwell í Skotlandi.
Hann afrekaði það árið 2016 að verða yngsti leikmaðurinn til að spila í efstu deild í Serbíu aðeins 15 ára og 328 daga gamall.
„Þjálfarinn okkar, Alexandar Linta, vann með honum á hans yngri árum og ætti því að þekkja kosti hans og galla. Við bjóðum Filip velkomin til Eyja og óskum honum áls hins besta í Bestu Deildinni í sumar," segir í tilkynningu ÍBV.



