Fotbolti.net
03.06.09 - 15:28
Hafliði Breiðfjörð

Steve Bruce tekur við Sunderland (Staðfest)

Steve Bruce huggar Jose Mourinho.

Steve Bruce huggar Jose Mourinho.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur gengið frá ráðningu Steve Bruce í knattspyrnustjórastöðu félagsins en hann kemur til félagsins frá Wigan og gerir þriggja ára samning við Sunderland. Hann tekur við starfinu af Ricky Sbragia sem ákvað að hætta eftir síðustu leiktíð.
Bruce hefur á tíma sínum sem knattspyrnustjóri stýrt liðum Sheffiel United, Huddersfield, Crystal Palace, Birmingham og Wigan tvisvar. Eric Black, Nigel Sping og Keith Bertschin munu verða aðstoðarmenn Bruce með liðið.

Hann kom öðru sinni til Wigan í nóvember 2007 og á þessari leiktíð stýrði hann liðinu í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, en Sunderland endaði í sextánda sæti.

,,Steve veit meira en nokkur annar um hvað fótbolti snýst fyrir fólki á þessu svæði, og ég er fullviss um að hann mun geta innstillt leikmenn okkar akkúrat á hvað það þýðir að spila fyrir þetta félag,\" sagði Niall Quinn formaður Sunderland en Bruce er fæddur í Newcastle.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.