Fotbolti.net
03.08.10 - 10:00
Alexander Freyr Tamimi

Hverju misstir þú af um verslunarmannahelgina?

Þú getur fundið helstu fótboltafréttir verslunarmannahelgarinnar í þessari grein.

Þú getur fundið helstu fótboltafréttir verslunarmannahelgarinnar í þessari grein.

Canon

Mynd: Getty Images

Nú er stærsta ferðamannahelgi okkar Íslendinga afstaðin og er meiri hluti landsmanna snúinn aftur heim eftir að hafa gert sér glaðar stundir. En hvort sem þið lesendur okkar hafið kosið að skella ykkur til Vestmannaeyja, Akureyrar, í sumarbústaðinn eða annað, þá er það á hreinu að einhver ykkar þurftuð kannski að láta fótboltann mæta afgangi um helgina.
Þannig er þó mál með vexti að jörðin heldur áfram að snúast þrátt fyrir að margir hafi verið án nettengingar um helgina og hefur Fótbolti.net haldið áfram að birta fréttirnar úr fótboltaheiminum undanfarna daga.

Til að létta ykkur lífið höfum við ákveðið að safna okkar helstu fréttum frá verslunarmannahelginni saman hér í þessa grein, svo að þið getið kíkt á allar helstu fréttirnar á einum og sama staðnum. Svo að njótið vel, kíkið á það sem þið misstuð af um helgina!

Fimmtudagur 29. júlí:

Áskorun: Halldór Orri fór í tvöfaldan spray tan (Myndband)
Guðlaugur Victor í 25 manna UEFA hópi Liverpool - verður númer 44
Gunnar Kristjánsson á láni í FH (Staðfest)
Knattspyrnukona Suður Afríku 2008 til ÍBV (Staðfest)
Guðmundur Andri Bjarnason í Grindavík (Staðfest)
KR komið í úrslit VISA bikarsins eftir sigur á Fram
Mark Hughes tekinn við Fulham (Staðfest)

Föstudagur 30. júlí:

Hernandez fer ekki á láni frá Man Utd
Úrslitaleikir VISA-bikarsins skarast á við fyrstu umferð á Englandi
Marlon King laus úr fangelsi
Rúrik Gíslason skoraði fyrir OB í Evrópudeildinni
Jóhann Berg skoraði stórkostlegt mark fyrir AZ í Evrópudeildinni (Myndband)
Danny König hættir í Val - Írskur framherji kemur í staðinn (Staðfest)
Jóhann Berg: Ekkert annað í stöðunni en að láta vaða
Robinho vill ekki fara aftur til City
Sami Khedira í læknisskoðun hjá Real Madrid
Garðar Jóhannsson í Stjörnuna (Staðfest)
Steinþór Freyr Þorsteinsson úr Stjörnunni í Örgryte (Staðfest)
Dofri Snorrason í KR (Staðfest)
David James í Bristol City (Staðfest)

Laugardagur 31. júlí:

Henry ætlar aldrei aftur í franska landsliðið
Boaz Myhill í West Bromwich Albion (Staðfest)
Freddy Ljungberg skiptir um lið í Bandaríkjunum
Sami Khedira í Real Madrid (Staðfest)
Queiroz í vandræðum fyrir að móðga lyfjaeftirlitsmenn
Stjarnan fær bandarískan framherja (Staðfest)
Alfredo Di Stefano laus af sjúkrahúsi
Eggert Gunnþór og Gylfi Sig skoruðu í æfingaleikjum
Björn Bergmann skoraði og fór í markið fyrir Stefán Loga
Aron Einar reif vöðva í innkasti í seinasta leik undirbúningstímabilsins
David Beckham fer ekki aftur til AC Milan
Fabio Aurelio aftur til Liverpool (Staðfest)

Sunnudagur 1. ágúst:

Fulham vill láta reka formann ensku úrvalsdeildarinnar
Wenger ósáttur við reglur um stærð leikmannahópa
Gunnar Heiðar ekki til Charlton, Svíþjóðar eða Noregs
Ronaldo fær líklega treyju nr. 7 hjá Real Madrid
HM Stjörnur á leið í Kaplakrikann - Gylfi Sig verður með
Drogba og Cech ná fyrsta leik tímabilsins
Insua líka kominn aftur ti Liverpool
Olga Færseth í Selfoss (Staðfest)
Joe Cole spilaði sinn fyrsta leik fyrir Liverpool
Raul skoraði tvö mörk fyrir Schalke (Myndband)

Mánudagur 2. ágúst:

Jimmy Jump hljóp inn á völlinn og klúðraði dauðafæri (Myndband)
Shevchenko sýnir að hann er lunkinn vasaþjófur (Myndband)
Markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar á leið til Man City?
Anderson dreginn meðvitundarlaus úr brennandi bíflaki
Maður keyrði inn á bar og byrjaði að skjóta út af Vuvuzela
Kínverji búinn að leggja fram tilboð í Liverpool?
Fabregas og Van Persie ekki með í síðasta æfingaleik Arsenal
Almunia ætlar ekki að yfirgefa Arsenal
Torres vinsælasta treyjunafnið annað árið í röð
Eriksson hættur með landslið Fílabeinsstrandarinnar (Staðfest)
Japanskt úrvalsdeildarlið hermir eftir Stjörnufagninu (Myndband)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.