03.08.10 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Rafael Marquez í New York Red Bulls (Staðfest)

Rafael Marquez og Thierry Henry eru nú báðir leikmenn New York Red Bulls.

Mynd: Getty Images

Mexíkóski landsliðsmaðurinn Rafael Marquez hefur gengið til liðs við New York Red Bulls frá Barcelona og fetar hann þar með í fótspor Thierry Henry, sem fór sömu leið fyrir skömmu.
Marquez hefur spilað seinustu sjö ár með Barcelona en þar áður var hann á mála hjá Monaco í frönsku úrvalsdeildinni. Leikmaðurinn var orðaður við ýmis félög í Evrópu en ákvað að lokum að halda til Bandaríkjanna og er félagið í skýjunum með að hafa náð að bæta honum í hópinn.
„Rafael hefur sýnt það með bæði félagsliðum sínum og landsliði að hann er einn af betri leikmönnum heims,“ sagði Dietmar Beiersdorfer, forseti Red Bull Global Soccer, í yfirlýsingu.
„Við erum himinlifandi með að hann hafi ákveðið að koma til New York Red Bulls á þessum tíma ferilsins.“
Sjálfur var Marquez mjög sáttur við ákvörðun sína og hlakkar hann til að spila í Bandaríkjunum.
„Að koma til New York og spila í MLS-deildinni var tækifæri sem ég gat ekki látið ganga mér úr greipum,“ sagði Marquez.
„Ég ætla að gera mitt allra besta til að hjálpa Red Bulls í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni í ár og berjast um titla næstu ár.“

Heimild: Sky