03.08.10 - 11:51
Hafliði Breiðfjörð
Tal Ben Haim til West Ham á láni (Staðfest)

Tal Ben Haim í leik með Portsmouth.

Mynd: Getty Images

Tal Ben Haim í leik með Portsmouth.

Mynd: Getty Images
Ísraelski miðvörðurinn Tal Ben Haim er genginn í raðir West Ham á fimm mánaða lánssamningi frá Portsmouth.
Þessi 28 ára gamli varnarmaður er fjórði leikmaðurinn sem Avram Grant fyrrverandi stjóri Portsmouth fær til sín hjá West Ham.
West Ham segir einnig að félagið sé nærri því að ganga frá samningum við ungan landsliðsmann sem spilaði á Heimsmeistaramótinu í Suður Afríku í sumar.
Ben Haim hefur einnig spilað með Chelsea, Sunderland og Bolton á Englandi.
Hann lék 24 leiki með Portsmouth eftir að hafa komið frá Manchester City á síðustu leiktíð.

Heimild: BBC