Fotbolti.net
03.09.08 - 06:00
Davíð Örn Atlason

David di Michele og Herita Ilunga á láni til West Ham (Staðfest)

David di Michele.

David di Michele.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hafa nælt í tvo leikmenn á tólf mánaða lánssamning. Þeir David di Mechele og Kongó maðurinn Herita Ilunga eru komnir til liðsisns.
Báðir leikmenn eiga eftir að fá leikheimild hjá enska knattspyrnusambandinu en félagaskiptin komu seint inn á borð sambandsins.

Di Michele, sem er 32 ára gamall kemur frá Torinio á meðan að Ilunga, 26 ára kemur frá franska liðinu Toulouse.

Þá eru West Ham einnig í viðræðum við Stephen Appiah. Þessi 27 ára gamli miðjumaður er ósamningsbundinn eftir að hafa fengið sig lausan frá Fenerbache.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.