Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   þri 03. september 2019 11:33
Arnar Daði Arnarsson
Emil Hallfreðs æfir með FH: Í betra formi en í júní
Icelandair
Emil í leiknum gegn Tyrkjum í júní.
Emil í leiknum gegn Tyrkjum í júní.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Ég er að æfa með FH og hef gert það í allt sumar. Þeir byrjuðu að geta eitthvað eftir að ég fór að æfa með þeim," sagði Emil Hallfreðsson léttur í bragði fyrir landsliðsæfingu í dag.

Emil er án félags í augnablikinu en samningur hans hjá Udinese rann út í sumar. „Ég er búinn að æfa vel og er duglegur. Ég er ánægður með standið á mér og það er allt í orden," sagði Emil.

„Ég er í betra standi núna en í júní þegar ég spilaði 90 mínútur gegn Tyrkjum. Þá var maður að koma til baka eftir meiðsli. Mér líður miklu betur líkamlega núna. Ég held það skipti ekki miklu máli þó ég væri búinn að spila nokkra undirbúningsleiki."

Emil vonast til að semja við nýtt félag á Ítalíu á næstu vikum. Þar sem hann er samningslaus má hann semja þó að félagaskiptaglugginn á Ítalíu hafi lokað í gærkvöldi.

„Það er ekkert komið á hreint með það. Ég ákvað að leggja þetta til hliðar þegar landsliðsverkefnið er í gangi. Ég ætla að setja hausinn á þessa tvo leiki og sjá síðan hvað gerist," sagði Emil.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner