03.11.08 - 13:07
Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Benediktsson í KR (Staðfest)

Guðmundur í leik með Val í Landsbankadeildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Benediktsson er genginn í raðir KR að nýju en þetta staðfesti Rúnar Kristinsson yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu í samtali við Fótbolta.net í dag. Guðmundur sem kemur frá Val þar sem hann hefur verið undanfarin ár gerir eins ár samning við KR.
,,Gummi býr í næsta húsi, sonur hans er í KR og við höfum vitað af hans áhuga fyrir því að þjálfa í náinni framtíð,\" sagði Rúnar í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Við sjáum hann sem gamlan KR-ing sem er framtíðar þjálfari í yngri flokka starfinu okkar. Hann er með gríðarlega reynslusem leikmaður og gæti miðlað miklu sem gæti nýst félaginu í framtíðinni. Hann mun taka sínar þjálfaragráður og getur nýst okkur vel en getur líka nýst okkur vel sem leikmaður,\" bætti hann við.
Guðmundur sem er 35 ára gamall gekk í raðir Vals frá KR árið 2005 og lék þá alla 18 leiki liðsins í Landsbankadeildinni. Hann missti aðeins af einum leik með liðinu í deildinni 2006 og 2007 og lék 17 leiki í deildinni í sumar og skoraði í þeim tvö mörk.
Hann á að baki 128 leiki með KR í efstu deild og hefur skorað í þeim 39 mörk. Hann snýr nú aftur til síns gamla félags en þarna fer einn flinkasti leikmaður deildarinnar.