Fotbolti.net
03.11.08 - 15:13
Magnús Már Einarsson

Nicky Hunt til Birmingham á láni (Staðfest)

Nicky Hunt til Birmingham á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur fengið Nicky Hunt hægri bakvörð Bolton á láni í einn mánuð.
Hunt hefur ekki fengið sénsinn hjá Bolton á þessari leiktíð en Grétar Rafn Steinsson hefur byrjað í hægri bakverðinum í öllum leikjum tímabilsins.

Hunt var á bekknum gegn Manchester City í gær en núna er hann farinn til Birmingham og gæti hoppað beint inn í leikmannahópinn sem mætir Coventry í kvöld.

Stuart Parnaby og Stephen Kelly eru meiddir og því var Birmingham í leit að hægri bakverði en Alex McLeish stjóri liðsins er ánægður með að hafa náð að krækja í Hunt.

,,Nicky er leikmaður sem er með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni. Hann spilaði nánast alla leiki undir stjórn Sam Allardyce en hefur ekki spilað jafnmikið undir stjórn Gary Megson,\" sagði McLeish.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.