03.11.08 - 15:05
Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Óskar tekur við HK/Víkingi (Staðfest)

Guðmundur er hér lengst til hægri á myndinni ásamt félögum sínum í KV í sumar.

Mynd: KV

Guðmundur er hér lengst til hægri á myndinni ásamt félögum sínum í KV í sumar.

Mynd: KV

HK/Víkingur hefur gengið frá ráðningu á nýjum þjálfara fyrir komandi tímabil í 1. deild kvenna. Nýr þjálfari er Guðmundur Óskar Pálsson sem er aðeins 24 ára gamall og þjálfaði KV í 3. deildinni á síðustu leiktíð. Frá þessu var greint á vefsíðu HK í dag.
Guðmundur Óskar tekur við starfinu af Sigurði Víðissyni sem hefur stýrt HK/Víking undanfarin ár en tilkynnti eftir nýliðið tímabil að hann hyggðist hætta með liðið. HK/Víkingur endaði í níunda og næst neðsta sæti Landsbankadeildarinnar í sumar og leikur því í 1. deild næsta sumar.
Guðmundur Óskar er 24 ára gamall KR-ingur sem hefur þjálfað í Vesturbænum undanfarin ár. Á nýliðnu tímabili þjálfaði hann meistaraflokk karla hjá Vesturbæjarliðinu KV í 3. deild en undir hans stjórn náði liðið sínum besta árangri frá upphafi og hafnaði í þriðja sæti deildarinnar.
Guðmundur Óskar mun jafnframt þjálfa 2. flokk kvenna hjá HK/Víkingi fram að áramótum.

Heimild: Vefsíða HK