Fotbolti.net
03.11.08 - 16:00
Hafliði Breiðfjörð

Anna Margrét Gunnarsdóttir í Hauka (Staðfest)

Anna Margrét Gunnarsdóttir í leik með Keflavík í sumar.

Anna Margrét Gunnarsdóttir í leik með Keflavík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Kvennaboltinn
Haukar fengu í dag góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í 1. deild kvenna næsta sumar þegar Anna Margrét Gunnarsdóttir gekk í raðir félagsins frá Landsbankadeildarliði Keflavíkur. Frá þessu var greint á vefsíðu Hauka í dag.
Anna Margrét Gunnarsdóttir er 28 ára gömul og getur leikið sem miðjumaður eða varnarmaður. Hún hafði gengið í raðir Keflavíkur í júlí frá Stjörnunni og kláraði tímabilið með Keflavík þar sem hún lék níu leiki og skoraði tvö mörk. Hún hafði ekkert leikið síðan 2004 er hún lék að nýju með Stjörnunni gegn HK/Víking í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar í vor en fór svo til Keflavíkur.

„Hún styrkir liðið gríðarlega og ég er mjög spenntur fyrir henni. Hún vildi koma til Keflavíkur í fyrra og spila undir minni stjórn, en loks þegar hún kom til Keflavíkur var ég hættur þar. Hún ákvað því að koma til Hauka núna sem er mjög ánægður með,“ sagði Salih Heimir Porca þjálfari Hauka á vefsíðu félagsins í dag.

Hún er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Hauka síðustu vikuna því áður höfðu Fjóla Dröfn Friðriksdóttir komið frá KR og Linda Rós Þorláksdóttir frá Keflavík. Allar höfðu þær áður leikið með Haukum.

Haukar eru mjög stórhuga með kvennalið sitt fyrir komandi leiktíð og Salih Heimir hefur áður lýst því yfir að hann muni styrkja lið sitt verulega og er greinilega að standa við stóru orðin með þessum þremur leikmönnum.

Heimild: Haukar.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.