Fotbolti.net
03.12.09 - 13:26
Magnús Már Einarsson

Davíð Þór Viðarsson til Öster (Staðfest)

Davíð Þór Viðarsson til Öster (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, hefur gengið til liðs við sænska 1.deildarfélagið Öster.
Davíð skrifaði undir þriggja ára samning við Öster í dag en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður við Fótbolta.net nú rétt í þessu.

Undanfarin ár hefur Davíð Þór verið lykilmaður á miðjunni hjá FH en hann hefur unnið fimm Íslandsmeistaratitla með félaginu og einn bikarmeistaratitil.

Davíð fór ungur að árum til Lilleström í Noregi en þessi 25 ára gamli leikmaður kom aftur til FH árið 2004.

Norrköping sýndi einnig áhuga á að fá Davíð í sínar raðir og þá æfði hann einnig með Álaborg í haust sem og KSV Roeselare í Belgíu. Hann endaði hins vegar á að semja við Öster í dag.

Öster leikur í næstefstu deild í Svíþjóð en liðið komst upp úr 2.deildinni á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.