Neymar var til viðtals eftir leik PSG og Manchester United í Meistaradeildinni í gær. Neymar skoraði tvö mörk í 1-3 útisigri PSG sem er í lykilstöðu í riðlinum.
Hann var spurður út í sína framtíð en hann hefur verið orðaður við endurkomu til Barcelona í hverjum félagaskiptaglugga frá því franska félagið keypti hann sumarið 2017.
Hann var spurður út í sína framtíð en hann hefur verið orðaður við endurkomu til Barcelona í hverjum félagaskiptaglugga frá því franska félagið keypti hann sumarið 2017.
„Það sem ég vil mest af öllu er að spila með Messi aftur, að geta notið þess að vera með honum á vellinum," sagði Neymar.
„Ég er viss um að ég og Messi verðum saman á vellinum á næsta ári."
Neymar expresses his desire to play with Messi again 👀 pic.twitter.com/7gPich5u7T
— ESPN FC (@ESPNFC) December 3, 2020
Athugasemdir