04.01.05 - 17:19
Blake til Birmingham (Staðfest)

Blake fagnar marki

Blake fagnar marki

Birmingham hafa staðfest kaupin á Robbie Blake frá Burnley. Blake er 28 ára gamall framherji og var í læknisskoðun hjá félaginu í dag og skrifaði í kjölfarið undir samninginn. Kaupverðið er 1,5 milljónir punda en Blake hefur skorað 13 mörk á tímabilinu í 1. deildinni.
Mikael Forssell verður frá út tímabilið og Dwight Yorke var að togna og því eru aðeins Emile Heskey og Clinton Morrison eftir í sóknarlínunni. Hann má ekki spila um næstu helgi gegn Leeds í FA bikarnum en gæti verið með gegn Charlton helgina þar á eftir.
"Ég er viss um að Robbie er tilbúinn fyrir úrvalsdeildina" segir Steve Bruce stjóri Birmingham um Blake. "Það var mikilvægt fyrir okkur að fá annan framherja. Það var mikið áfall að missa Mikael Forssell og þar sem Dwight Yorke er meiddur höfum við aðeins tvö fríska framherja."