Fotbolti.net
04.01.05 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Beattie til Everton (Staðfest)

Alan Irvine, James Beattie og David Moyes

Alan Irvine, James Beattie og David Moyes

Canon
Everton hefur keypt sóknarmanninn James Beattie frá Southampton á sex milljónir punda. Beattie sem er 26 ára er búinn að skrifa undir fjögur og hálfs árs samning við Everton en hann er dýrasti leikmaðurinn sem að liðið hefur keypt frá upphafi.
Beattie mun væntanlega leika fyrsta leik sinn fyrir Everton gegn Plymouth í enska bikarnum um næstu helgi. Beattie skoraði 76 mörk í 233 leikjum með Southampton en hann kom til þeirra frá Blackburn árið 1998 en Blackburn fær hluta af þeim sex milljónum punda sem Everton borgar fyrir kappann.

Everton vann því kapphlaupið við Aston Villa um Beattie en bæði þessi lið hafa verið á eftir kappanum síðan í ágúst og lét Southampton, Beattie velja á milli þessara liða þegar að félagið tók sex milljóna punda tilboði beggja liða í síðustu viku. Everton hefur komið á óvart í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er fjórða sæti í deildinni en Beattie á að koma í stað Wayne Rooney sem fór til Manchester United síðastliðið sumar.

,,Ég hef talað við nokkra um James og allir hafa gefið honum mjög góð meðmæli." Sagði David Moyes stjóri Everton um Beattie en honum finnst kappinn passa vel inn í góðan liðsanda Everton.

Moyes vonast einnig til að Beattie verði ekki eini leikmaðurinn sem kemur til Everton í janúar. Skotinn sagði ,,Ég vonast til þess að fá fleiri ef það er mögulegt. Við höfum ekki marka leikmenn og sumir þeirra hefðu gott af hvíld svo ég vona að hann sé ekki sá eini sem komi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.