04.03.10 - 13:11
Magnús Már Einarsson
Daníel Freyr til Fjarðabyggðar á láni (Staðfest)

Daníel í leik með Fjarðabyggð í fyrra.

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Daníel í leik með Fjarðabyggð í fyrra.

Mynd: Austurglugginn/Gunnar
Fjarðabyggð hefur fengið varnarmanninn Daníel Frey Guðmundsson á láni frá Fylki út tímabilið.
Daníel Freyr þekkir vel til hjá Fjarðabyggð því að hann lék með liðinu í fyrstu deildinni síðastliðið sumar þar sem að hann var fastamaður í vörninni.
Daníel, sem verður 19 ára í apríl, skoraði eitt mark í 21 leik í fyrstu deildinni í fyrra sem og eitt mark í þremur leikjum í VISA-bikarnum.
Hann mun leika að nýju með Fjarðabyggð í Lengjubikarnum gegn ÍA og Njarðvík um helgina.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar