Fotbolti.net
04.03.12 - 13:48
Magnús Már Einarsson

Chelsea búið að reka Andre Villas-Boas (Staðfest)

Di Matteo tekur við út tímabilið

Andre Villas-Boas.

Andre Villas-Boas.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur ákveðið að reka knattspyrnustjóra sinn Andre Villas-Boas en frá þessu var greint í dag. Roberto di Matteo, aðstoðarmaður Villas-Boas, mun taka tímabundið við stjórnvölunum út tímabilið.
Villas-Boas tók við Chelsea síðastliðið sumar eftir að hafa gert góða hluti með Porto í Portúgal.

Þessi 34 ára gamli stjórin hefur hins vegar fengið mikla gagnrýni að undanförnu þar sem gengi Chelsea hefur verið fyrir neðan væntingar.

Liðið hefur einungis unnið þrjá af síðustu tólf leikjum í ensku úrvalsdeildinni og 1-0 tap gegn WBA í gær var kornð sem fyllti mæltinn hjá forráðamönnum Chelsea.

,,Stjórnin vil þakka honum fyrir framlag sitt og við lýsum yfir vonbrigðum að samband okkar hafi endað svona snemma,\" sagði í yfirlýsingu frá Chelsea í dag.

,,Því miður hafa úrslitin og frammistaða liðsins að undanförnu ekki verið nægilega góð og það eru engin merki á lofti um að spilamennskan sé að batna á þessum mikilvæga tíma á tímabilinu.\"

,,Félagið er ennþá í Meistaradeildinni og enska bikarnum og að berjast um eitt af fjórum efstu sætunum í ensku úrvalsdeildinni. Okkar markmið er að standa okkur sem best í öllum keppnum. Með það í huga fannst okkur vera kominn tími á að gera breytingar á þessum tímapunkti.\"


Di Matteo fær nú það verkefni að stýra Chelsea út tímabilið en hann lék með liðinu frá 1996-2002. Di Matteo var síðan stjóri hjá Milton Keynes Dons og WBA áður en hann kom aftur til Chelsea sem aðstoðarstjóri síðastliðið sumar.
Chelsea búið að reka Andre Villas-Boas (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.