04.03.12 - 16:08
Magnús Már Einarsson
Fjórði Norðmaðurinn til Selfyssinga (Staðfest)

Mynd: Sunnleska.is

Mynd: Sunnleska.is
Selfoss hefur samið við norska miðjumanninn Jon Andre Røyrane en þetta kemur fram á sunnlenska.is.
Røyrane hefur verið á reynslu hjá Selfyssingum að undanförnu og hann vann sér sinn samning hjá félaginu.

Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur leikið 33 leiki í efstu deild í Noregi fyrir Sandefjörd og skorað í þeim fjögur mörk.
Hann er fjórði Norðmaðurinn í leikmannahópi Selfoss en fyrir eru þeir Endre Ove Brenne og Ivar Skjerve, sem léku með Selfossi í fyrra og Robert Sandnes sem gekk í raðir félagsins fyrr í vetur.
Auk Norðmannanna hafa Selfyssingar fengið Tómas Leifsson og Ólaf Karl Finsen í sínar raðir síðan þeir komust upp í Pepsi-deildina á nýjan leik síðastliðið haust.

Heimild: Sunnlenska.is