Fotbolti.net
04.04.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Sigþór Snorrason í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Sigþór Snorrason í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sigþór Snorrason hefur gengið til liðs við sitt gamla félag BÍ/Bolungarvík en hann kemur frá Leikni Reykjavík.
Þessi 23 ára gamli varnar og miðjumaður er uppalinn hjá BÍ og hann hóf að leika með meistaraflokki félagsins aðeins 16 ára gamall.

Eftir að hafa verið lykilmaður hjá BÍ/Bolungarvík sumarið 2007 fór Sigþór í Leikni þar sem hann lék þrettán leiki í fyrstu deildinni á síðustu leiktíð.

Sigþór hefur fengið leikheimild með BÍ/Bolungarvík og getur hann því leikið með liðinu gegn Hvöt og Berserkjum í Lengjubikarnum um helgina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.