04.04.09 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Javier Aguirre ráðinn landsliðsþjálfari Mexíkó (Staðfest)

Javier Aguirre er nú tekinn á ný við mexíkóska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Knattspyrnusamband Mexíkó var ekki lengi að finna arftaka Sven Göran Eriksson en Javier Aguirre hefur nú verið ráðinn landsliðsþjálfari Mexíkó í annað skiptið.
Stjórnunarferill Eriksson í Mexíkó var ekki mjög farsæll og var hann rekinn á föstudaginn eftir 3-1 tap gegn Hondúras í undankeppni Heimsmeistaramótsins.
Aguirre, sem var tiltölulega nýlega rekinn frá Atletico Madrid, stýrði Mexíkó á Heimsmeistaramótið 2002 og er hann mikils metinn meðal stuðningsmanna liðsins.
Eriksson hafði einungis verið tíu mánuði í starfi og var tapið gegn Hondúras síðasti naglinn í kistu hans. Það ætti þó að lina sársauka Svíans að hann fær 3,5 milljónir dollara í starfslokagreiðslur.

Heimild: Sky