Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
banner
   lau 04. apríl 2026 10:50
Brynjar Ingi Erluson
Trippier yfirgefur Newcastle í sumar (Staðfest)
Kieran Trippier
Kieran Trippier
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Kieran Trippier, varafyrirliði Newcastle United, mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.

Trippier er 35 ára gamall og spilaði yfir 150 leiki fyrir Newcastle síðan hann kom frá Atlético Madríd árið 2022.

Hlutverk hans óx hratt og tók hann oft við fyrirliðabandinu á öðru tímabili sínu.

Það tímabil var hann valinn besti leikmaður ársins hjá Newcastle. Á þessum rúmum fjórum árum hefur hann náð mörgum merkilegum áföngum.

Hann varð annar leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að leggja upp þrjú skallamark í sama leiknum og fyrsti Newcastle-maðurinn til að leggja upp í fjórum leikjum í röð.

Á síðasta ári lyfti hann deildarbikarnum með Newcastle, sem var fyrsti stóri titill félagsins í 70 ár, en nú er komið að kveðjustund eftir frábæran tíma hjá félaginu.

„Það er komið að kveðjustund eftir fjögur og hálft ár hjá þessu frábæra félagi. Hér hef ég fundið mig mest heima. Þetta er mjög tilfinningaríkt augnablik og mun ég sakna þess að vera hér.“

„Ég vil senda stórar þakkir á stuðningsmennina fyrir allan stuðninginn í gegnum súrt og sætt. Þið hafið alltaf stutt við bakið á mér.“

„Það verður tilfinningaþrungin stund að kveðja liðsfélagana. Þetta hefur verið ótrúleg vegferð með ykkur og mun ég sakna ykkar allra, en að vinna titil með ykkur var sérstök stund og sú besta á mínum ferli.“

„Ég vil sömuleiðis senda Eddie Howe, þjálfarateyminu og öllu fólkinu á bak við tjöldin sérstakar þakkar. Stjórinn sýndi mér traust með því að fá mig tvisvar og gaf mér tækifærið til að spila og gegna fyrirliðahlutverki hjá þessu frábæra félagi og skilaði okkur titli. Ég mun sakna allra hjá félaginu. Takk!“
sagði Trippier.


Slapp
banner
banner