04.05.09 - 14:10
Hafliði Breiðfjörð
Sami Hyypia til Bayer Leverkusen (Staðfest)

Hyypia í leik með Liverpool.

Mynd: Getty Images

Hyypia í leik með Liverpool.

Mynd: Getty Images
Sami Hyypia hefur samið við Bayer Leverkusen og gengur til liðs við félagið þegar samningur hans við Liverpool rennur út í sumar. Þetta var staðfest á vef Liverpool í dag en miðvörðurinn gerir tveggja ára samning við þýska félagið.
Finninn gekkst undir læknisskoðun hjá þýska félaginu í morgun og mun hitta nýla liðsfélaga sína þegar undirbúningstímabilið hefst í sumar.
Hann hafði gengið í raðir Liverpool í maí árið 1999 og kostaði félagið þá aðeins 2,5 milljónir punda en hann kom frá Willem II í Hollandi.
Síðan þá hefur hann komist í guðatölu á Anfield en á tímabili, frá nóvember 2001 - febrúar 2006 lék hann hverja einustu mínútu í 57 leikjum liðsins í Evrópukeppni.
Hann hefur fallið niður goggunarröðna eftir að Daniel Agger og Martin Skrtel komu til félagsins .

Heimild: Vefur Liverpool