Fotbolti.net
04.05.09 - 21:30
Hafliði Breiðfjörð

María B. Ágústsdóttir í Val (Staðfest)

María er komin í Val.

María er komin í Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Markvörðurinn María Björg Ágústsdóttir er gengin í raðir Íslandsmeistara Vals frá bikarmeisturum KR en þetta staðfesti Freyr Alexandersson þjálfari Vals við Fótbolta.net í kvöld.
María Björg Ágústsdóttir er einn af markmönnum íslenska landsliðsins sem hafði verið eftirsótt í haust og Valur og Kristianstad frá Svíþjóð vildu fá hana í sínar raðir.

Hún valdi í nóvember að vera áfram í herbúðum KR en hefur þó klásúlu um að hún megi fara erlendis berist henni gott tilboð þaðan. Henni snerist svo hugur og hún óskaði eftir því nýlega að fá að yfirgefa KR og viðræður hófust milli KR og Vals sem nú er lokið með því að hún hefur skipt um lið.

María sneri aftur í fótboltann fyrir síðustu leiktíð eftir nokkuð hlé. Hún er 26 ára gömul og lék 17 leiki með KR í Landsbankadeildinni í sumar auk þriggja bikarleikja eftir að hafa verið í fríi 2006 og 2007.

Hún vann sér strax sæti í íslenska landsliðshópnum áður en Íslandsmótið hófst og í haust var hún orðin byrjunarliðsmarkvörður landsliðsins og varði mark Íslands í leikjunum tveimur gegn Írlandi í umspili um sæti á EM 2009.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.