Fotbolti.net
04.05.23 - 15:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hin hliðin - Ásgeir Marinó Baldvinsson (Þróttur V.)

Ásgeir Marinó í leik með Þrótti Vogum.

Ásgeir Marinó í leik með Þrótti Vogum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Miðjumaðurinn Ásgeir Marinó Baldvinsson gekk í raðir Þróttar Vogum í vetur eftir að hafa leikið með Þór á Akureyri þar áður. Hann á að baki 44 leiki fyrir Þórsara í Lengjudeild og bikarkeppni KSÍ.

Ásgeir, sem er fæddur árið 2001, lék einnig í yngri flokkunum með FH en hann kemur til með að styrkja lið Þróttar mikið í 2. deildinni í sumar. Í dag sýnir Ásgeir á sér hina hliðina.

Sjá einnig:
Spá þjálfara í 2. deild: 3. sæti
Fullt nafn: Ásgeir Marinó Baldvinsson

Gælunafn: Geiri, Geiti,

Aldur: 21

Hjúskaparstaða: Einhleypur

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Spilaði með FH gegn Víkingum í Lengjubikarnum 2020, en fyrsti mótsleikur var fyrir Þór gegn ÍBV 2020.

Uppáhalds drykkur: Einn sót svartur kaffibolli.

Uppáhalds matsölustaður: Flatey

Hvernig bíl áttu: Ég á ekki bíl. Er umhverfisvænn, kýs að labba.

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Peaky Blinders

Uppáhalds tónlistarmaður: Future og Birnir mega deila þessu

Uppáhalds hlaðvarp: Eiginkonur

Fyndnasti Íslendingurinn: Egill Einarsson

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: "Ásgeir Marinó Baldvinsson, áætlaður afhendingartími er eftir 10 til 20 mínútur, kveðja Fedex"

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Haukum, myndi aldrei nenna æfa á Blásvöllum.

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Óskar Örn Hauksson, átti í töluverðu brasi með hann.

Besti leikmaður sem þú hefur spilað með: Ísak Örn Guðbjörnsson, spilaði sem framherji upp yngri flokkana hjá FH og sló hvert markametið á fætur öðru. Mikil synd að hann þurfti að hætta vegna meiðsla. Hefði farið alla leið.

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Sveinn Leó Bogason og Andri Steinn Birgisson eru þeir sem maður hefur lært mest af. Bæði innan sem utan vallar.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Birgir Ómar Hlynsson, Gjörsamlega óþolandi.

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Atli Sigurjónsson

Sætasti sigurinn: Þegar þú spilar fyrir Þór eru sætustu sigrarnir alltaf gegn KA. Fyrsti leikurinn minn fyrir 2fl Þórs var gegn KA þar sem við unnum þá 1-0. Sá leikur poppar fljótt upp.

Mestu vonbrigðin: Það var þegar tímabilið 2020 var blásið af vegna Covid. Þá var ég búinn að koma mér inn í Þórsliðið og við vorum efstir í 2fl. Mjög leiðinlegt að fá ekki að klára mótið.

Uppáhalds lið í enska: Mikill Aston Villa maður eins og Villi í Steve.

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Fengi Glódísi Perlu Viggósdóttur til að líma saman vörnina í Vogum.

Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Bríet vinkona mín í 4fl KA, aldrei séð svona mikla hæfileika.

Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Baldur Logi Guðlaugsson finnst mér rosalega huggulegur.

Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Lillý Rut Hlynssdóttir, hún fékk öll góðu genin.

Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Ronaldinho

Hver er mesti höstlerinn í­ liðinu: Það er mikið talað um að Stefán Jón Friðriksson fari aldrei af gugguvaktinni. Hann er líka sonur Frikka Frikk sem er greinilega Legend í Keflavík.

Uppáhalds staður á Íslandi: Þorpið

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Spurði dómarann hvort hann væri fullur og fékk lóðbeint rautt spjald.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Á leikdegi fæ ég mér alltaf sama Pre-workoutið sem lætur mig klæja. Koffínið og kláðinn kemur mér vel í gang.

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: já, er orðinn mikill UFC maður.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Phantom

Í hverju varstu/ertu lélegust í­ skóla: Var alveg agalegur í myndmennt og allri handavinnu yfir höfuð.

Vandræðalegasta augnablik: fyrir ca 5 árum, Þegar ég ætlaði að taka í spaðann á Pétri Viðars en hann ætlaði að klessa hann til baka, situr ennþá í mér...

Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: Ég tæki Teit Magnússon, leikmann HK. Hann er eldklár og kæmi okkur alltaf heim. Baldur Logi Guðlaugsson, leikmann Stjörnunar. Hann sæi um að aðstoða Teit. Svo tæki ég Einar Örn Harðarson, leikmann ÍH. Hann myndi passa það að allir væru léttir og í góðu skapi.

Sturluð staðreynd um sjálfa þig: Ég borða svona 4-6 banana á dag.

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Birgir Ómar Hlynsson, var búinn að heyra að hann væri leiðinlegur en kom í ljós að hann er alveg drep leiðinlegur.

Hverju laugstu síðast: Að ég ætti ekki bíl.

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun er alveg agalega leiðinleg þó hún sé mikilvæg. Sveinn Leó Bogason var alltaf með eina upphitun í Þór sem var svona 45min og alveg DREP leiðinleg. Var duglegur að minna hann á það. Vona að hann sé ekki ennþá með hana.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Spyrja Kim Jong-Un hvort að hann gæti í alvöru talað við höfrunga.
Ásgeir Örn er ágætur í fótbolta.

Ásgeir Örn er ágætur í fótbolta.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Sigurjónsson.

Atli Sigurjónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Baldur Logi Guðlaugsson.

Baldur Logi Guðlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Teitur Magnússon.

Teitur Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Leó hér á bekknum hjá Þórsurum.

Sveinn Leó hér á bekknum hjá Þórsurum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.