Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   mán 04. maí 2026 11:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ég var smá sjokkeraður hvað þeir voru betri"
Stjarnan fagnar marki í gær.
Stjarnan fagnar marki í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stjarnan hefur farið illa af stað í Bestu deildinni og hefur núna tapað þremur leikjum í röð. Þeir þurftu að sætta sig við 1-2 tap gegn ÍA á heimavelli í gær og var erfitt að tala um eitthvað annað en sanngjörn úrslit.

„Þetta var frekar sérstakur leikur. Mér fannst Skagamenn mikið betri liðið. Ég var smá sjokkeraður hvað þeir voru betri," sagði Valur Gunnarsson þegar rætt var um leikinn í Innkastinu.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  2 ÍA

„Ég er ekki mikið að nefna einhverja tölfræði hérna en í heildina voru Skagamenn með 443 heppnaðar sendingar á móti 310 hjá Stjörnunni, á heimavelli Stjörnunnar. Þeir eru 56% með boltann. Ég horfði á þennan leik og skildi ekki hvað Stjarnan var að gera. Jökull nefnir það í viðtali eftir leik að þetta er versta frammistaða þeirra hingað til en þetta er samt þriðji tapleikurinn í röð," sagði Valur.

Sigurmarkið hjá Skagamönnum var býsna einfalt þar sem varnarleikur Stjörnunnar var út á þekju. „Ég man ekki eftir að hafa séð svona varnarleik," sagði Almarr Ormarsson í þættinum.

„Menn voru eitthvað að reyna að klína þessu bara á Árna (Snæ Ólafsson) en það er algjört kjaftæði. Boltinn fer yfir alla. Viktor (Jónsson) stendur ekki einu sinni alveg á miðlínunni, samt er hann langfremstur af öllum. Þetta var verðskuldaður sigur," sagði Valur og bætti við:

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af Stjörnuliðinu en þessu Skagaliði nokkurn tímann."

Hlýtur að vera krafa á árangur
Það hlýtur að vera krafa á árangur hjá Stjörnunni miðað við það sem er lagt í liðið.

„Það sem ég tók líka eftir - ekki að það skipti öllu máli - að það er einn uppalinn Stjörnumaður í byrjunarliðinu hjá þeim, Það er mjög misjafnt í deildinni hversu mörgum uppöldum liðin eru að spila en það sem hefur alltaf verið í Garðabænum er að það eru ungir og sprækir Stjörnumenn. Það virtist vera endalaus uppspretta af þeim. Mér finnst það líka skrítið," sagði Almarr og hélt áfram:

„Ef þú ert kominn með lið sem eru bara aðkomumenn, þá hlýturðu að fara að biðja um árangur þarna. Ég átta mig ekki alveg á hvaða vegferð þetta lið er. Jökull svarar oft bara í gátum. Þú hlýtur að vilja að þetta lið sé að berjast um titilinn. Fyrir tímabilið hugsaði ég að Stjarnan myndi veita Víkingum samkeppni frekar en Breiðablik."

Fótboltinn hjá Stjörnunni er athyglisverður, kannski of flókinn og of mikil hugsun ef eitthvað er. „Maður er stundum bara: Hvað er að gerast þarna? Hvað erum við að gera þarna inn á?" sagði Valur. „Ef þú ert að ná í stig hér og þar, þá sleppur svona. Menn fara örugglega að setja spurningamerki. Ég get fullyrt það að þeir voru að stefna á titilbaráttu fyrir tímabilið. Þú færð ekki mann eins og Birni Snæ ef þú ætlar ekki í hana."

„Það er líka áhyggjuefni að þetta virkaði hálf andlaust. Þetta var ótrúlega flatt hjá þeim," bætti Valur við.
Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap
Slapp
banner
banner