Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   mán 04. maí 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói Kalli: Hélt að nýju reglurnar kæmu í veg fyrir svona hluti
,,Gríðarleg vinna framundan"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH er aðeins með eitt stig eftir fimm umferðir í Bestu deildinni en liðið tapaði fjórða leiknum í röð þegar liðið beið lægri hlut gegn Fram í gær. Þetta var fyrsti leikur sumarsins sem fór fram á grasinu í Kaplakrika.

Lestu um leikinn: FH 3 -  4 Fram

„Þetta eru gríðarlega erfiðar aðstæður og krefjandi að spila eins og völlurinn var fyrir bæði lið og þess vegna var fátt um fína drætti í sóknarleiknum," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir leikinn.

„Það er ekki mikið búið af þessu móti en við erum bara með eitt stig, hefðum klárlega átt að fá meira út úr leiknum í dag. Ég hef áhyggjur af því að við fáum of mörg mörk á okkur. Það er gríðarleg vinna framundan hjá okkur. Verkefnið er að við þurfum að halda áfram að bæta hlutina út frá okkar forsendum og þá mun ekkert breytast. Þurfum að fara yfir af hverju Framarar gengu svona á lagið og komu sér inn í leikinn og enduðu með að vinna hann þegar við vorum með 3-1 forystu, það er áhyggjuefni. Við þurfum að vera fljótir að bæta það sem við þurfum að bæta fyrir næsta leik."

Jói Kalli var ekki sáttur undir lokin þegar Jóhann Ingi Jónsson, dómari stöðvaði leikinn.

„Frábærar nýjar reglur með að stoppa tafir en svo ákveður dómarinn að stoppa leikinn út af krampa. Ég hélt að það væri verið að reyna koma í veg fyrir svona hluti með þessum nýju reglum. Ég skildi það ekki alveg og fékk ekki nógu góðar útskýringar af hverju það væri verið að stoppa leikinn."

Svekkjandi að þurfa taka Tomma og Flóka af velli
Jói Kalli tók Tómas Orra Róbertsson og Kristján Flóka Finnbogason af velli eftir klukkutíma leik. Tómas hefur verið veikur og Flóki að komast í gang eftir meiðsli.

„Svekkjandi að einhverju leyti að þurfa taka Tomma og Flóka útaf á 60. mínútu. Tommi var búinn að vera veikur í aðdraganda leiksins og var orðinn orkulítill og Flóki ekki í 100% leikformi þannig hann getur ekki spilað 90 mínútur," sagði Jói Kalli.

„Maður hefði helst viljað sleppa því. Því miður var þetta staðan en ég er ekkert að segja að það hafi verið ástæðan fyrir því að þeir gengu á lagið. Þeir voru búnir að eiga fínan leik og maður hefði viljað halda þeim lengur inn á."
Jói Kalli: Gríðarlega svekktur
Slapp
banner
banner
banner