Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 04. júlí 2022 09:56
Elvar Geir Magnússon
Palhinha til Fulham (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Nýliðar Fulham í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið til sín Joao Palhinha frá Sporting Lissabon en kaupverð er ekki gefið upp.

Þessi 26 ára portúgalski miðjumaður skrifaði undir fimm ára samning við Fulham með möguleika á ári til viðbótar.

Palhinha vann portúgölsku deildina með Sporting 2021 og var valinn í úrvalslið ársins í deildinni. Þá hefur hann leikið fjórtán landsleiki fyrir Portúgal. Hann er varnartengiliður og var áður hjá Braga.

„Ég er virkilega ánægður með að vera kominn hingað, þetta er stórt tækifæri fyrir mig og minn feril. Ég er að fara að spila í bestu deild heims að mínu mati," segir Palhinha.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner